|
Monday, September 25, 2006
Fólk eitthvað aðeins á mis hérna með færsluna á undan.. :) Þegar ég skrifaði ÉG ER FLUTT!! þá meinti ég að ég væri flutt á nýju heimasíðuna sem linkurinn er á ef þið ýtið á "FLUTT".. :o)
En sem sagt, þá er Rex komin með nýja heimasíðu sem er:
http://reginadilja.bloggar.is
Posted at 03:10 am by reginadilja
Permalink
Sunday, September 17, 2006
Posted at 03:19 am by reginadilja
Permalink
Wednesday, September 13, 2006
Þá er maður að komast inn í hlutina á nýjan leik..Búin að standa í svakalegum flutningum, netlaus og allslaus og bara algerlega úr sambandi við alheiminn. Svo er skólinn minn ein geðveiki út í gegn, próf próf próf og bannað að fá undir 8 takk fyrir þannig að maður er alveg á fullu þessa dagana.
Ég er að reyna að gera mér síðu á bloggar.is, en ég get ekki fokk...útskráð mig þar, þannig að ég er alltaf á kellinga síðunni..Ógó pirró..Er einhver tölvunörri þarna úti sem vill segja mér hvað ég á að gera?? Pah-lís!
Íbúðin okkar er að verða asskoti gordjöss, þvílíkur munur að vera kominn í íbúð þar sem maður réð nánast öllu sjálfur. Við erum lang fyrst til að flytja hérna inn, stillansarnir eru ennþá utan á húsinu og alltaf brjálað veður og ég alltaf ógeðslega hædd og myrkfælin..Ég sem hef ekki verið myrkfælin síðan ég veit ekki hvenær..Þess vegna fékk ég hjartastopp þegar Árni sagði áðan "Regína, farðu út og tékkaðu hver er að labba svona mikið fyrir utan gluggana okkar..ég er að heyra endalaus fótatök!" Guð, ég SVER það að ég fékk hjartastopp!! GLÆTAN að ég myndi voga mér út að tékka á því hver væri að labba fyrir utan gluggann minn!!!!!!!!!!!! Þannig að ég skipaði Árna (hann var sko farinn að sofa) að fara út, BE A MAN sagði ég alveg bandbrjáluð, þannig að hann vippaði sér í föt og fór út..Á meðan lagðist ég upp í rúm og gerði mig reddí til að grípa Róbert greyið sem var sofandi og hlaupa með hann út svo að Boogie Man myndi ekki ná okkur..
-Árni sneri svo aftur stuttu seinna, ég var nánast farin að krampa úr stressi, en þá kom það í ljós að það var bara fólk að flytja inn í íbúðina við hliðina. ÚFFF..hjúkket!!!!! :)
En ég nenniggi meir..Langar að fá mér bloggar.is síðu..Þið tölvunörrarnir þarna úti, segið mér hvernig ég fer að þessu maður áður en ég verð band-brjál!
Og hlakka til að sjá ykkur Kellingar í afmælisveislunni hans Róberts Elís míns á laugardaginn kl 3.. NÓG af veitingum, þ.e kökum..Heyriru það Katrín Amni??? :)
En bæ í bili...
R E G Í N A :o)

p.s Þessi er farinn að labba eins og herforingu út um allt!! :)
Posted at 04:16 pm by reginadilja
Permalink
Thursday, August 31, 2006
Já þvílík vika hjá mér 23 ára dömunni og fjölskyldu!!
 Guð minn einasti eini, þvílíkt stress, rugl og VESEN hef ég bara aldrei vitað!
Við áttum sem sagt að fá nýju íbúðina seinasta föstudag sem var æði því þá hefðum við getað dundað okkur bara við að leggja parketið og allt það um helgina, og flutt svo í rólegheitum í vikunni á eftir, en við áttum að afhenda Strandveginn á hádegi á morgun.
En verktakarnir ákváðu að halda hrikalegu orðspori iðnaðarmanna uppi, og seinkuðu sér fram yfir helgi. "OK, getum svosum alveg beðið þar til á mánudaginn" hugsuðum við þá. Á mánudeginum kom í ljós að ekki fengum við íbúðina þá. Og ekki fengum við hana á þriðjudeginum. En við fengum hana á þriðjudagsKVÖLDIÐ, en þá var svo mikið drasl inní henni eftir verktakana, að það vara ekki hægt að byrja að leggja gófefnin fyrren í gærkvöldi, sem er MIÐVIKUDAGSKVÖLD og við verðum að vera búin að flytja, tæma íbúðina og þrífa hana hátt og lágt hérna í Sjálandinu og skila einum og hálfum sólarhring seinna!!!!
OK, þetta hefði nú alveg getað tekist ef allt hefði gengið eins og smurt, en nei. Róbert Elí varð lasinn, og komst ekki til dagmömmunnar. Það er takmarkað sem hægt er að pakka og þrífa með lasinn lítinn krúttaling. Svo er Árni alltaf á æfingum, og ég er byrjuð í skólanum sem er á VERSTA tíma í heimi fyrir þessa flutninga okkar!! Ok, í dag fór Róbert Elí aftur til dagmömmunnar, orðinn hress skinnið litla, en NEIII, ligg ég ekki hérna FÁRveik! Kemst ekki í skólann, á að vera að fara í próf Á MORGUN, þarf nauðsynlega að vera ógisslega hress svo ég geti massað flutningana, parketlagnir, massað góða tíu á þetta próf OG halda blessað partýið sem ég er búin að vera að lofa fólki.
Sjitt ég er svona við það að fá taugaáfall. Árni minn er hins vegar alveg hriiikalega tjillaður, "Regína mín, ekkert stress" er eitthvað sem ég er búin að heyra alltof oft seinustu vikuna.
Sem betur fer fengum við frest á því að skila þessari íbúð, um einn sólarhring. Svo er ég bara búin að fá mér "húshjálp" sem ætlar að þrífa þessa íbúð fyrir okkur, þannig að þetta næst vonandi allt.
Svo er það bara að sjá hvernig heilsan þróast, og nýja heimilið, hvort partý aldarinnar verði haldið um helgina eða ekki.
Þetta átti nebbla að verða MEEEGA partý, allar kellingar, allir blikar og fleiri til, en þá verð ég að taka dagmömmu-pestina hans Róberts og leggjast til rekkju!
Andsk..!!
-mikið verður gott þegar þetta stress verður búið!
--jæja varð að pústa smá--
er farin að læra og pakka inn á milli..Og nottla snýta mér líka..
! ! ! S T U Ð ! ! !
BLESS
sendið okkur nú tryllta parketlagna og kvefbatnandi strauma!!
R E G Í N A
Posted at 04:32 am by reginadilja
Permalink
Thursday, August 24, 2006
AAAAAAAAARGH!!!!!!!
helvítis djkldklehkltrkl
TVISVAR, já ekki einu sinni, heldur TVISVAR í dag er ég búin að blogga svo langt skemmtó og fyndó, en það strokaðist svo allt út því tölvufjandinn er á sjálstæðis-skeiðinu!!!!!
HELVÍTI
eníveis
eg er orðin 23 ára
og nýjar myndir í albúmi
bless
p.s róbert er byrjaður hjá dagmömmu og er frekastur þar!!
JAHHÁ!
bless ég er í feitri fýlu!

Ég afmælis stelpa, og einhver gaur að halda utan um mig sem er ALLTAF að reyna við mig! Ég SVER það! Ógisslega gróft sko!

Ég og svalasti gaur EVER! Sjitt hvað hann er mikill gæji! Hann er líka að verða eins árs, og strax á góðri leið með að ná heims-yfirráðum!
TOPPIÐ ÞAÐ!!!!!!!!
p.s Natasha setti líka inn myndir frá ammælinu mínu..Ýtið hér til að fara á aktívustu blogg-síðu landsins!! Og hjá mesta yndinu!! :)
Posted at 01:45 pm by reginadilja
Permalink
Thursday, August 17, 2006
HEY KIDS!!
Hva segiði?
Ég er búin að sitja og blogga í 20 min..-Las svo skrifin yfir og ýtti á DELETE hið snarasta. Þessi 20 mínútna skrif höfðu orðið álíka spennandi og Íslandsmeistaramótið í refskák. Þau innihéldu ekki mikið meir en röfl um snobbað fólk, dýr húsgögn, og tilhlökkunar-væl yfir því að við séum að fara að fá nýju íbúðina eftir 11 daga!
Þannig ég ákvað að spara ykkur þau leiðindi..
Trúið mér..þið eruð mér þakklát..
Bæ þá í bili bara..Þar til andinn kemur yfir mig aftur..Þoli ekki þegar þetta gerist..Ég sem geri fátt skemmtilegra en að skrifa..Hvernig get ég orðið svona andlaus???? Óþolandi..!!!
Kannski get ég skellt í eina vísu fyrir ykkur í staðinn..??
-..svona öööörlítil sárabót fyrir aðdándann sem ég á víst í sveitinni (sbr. komment við síðustu færslu..takk þú elsku "ókunnug"..) og ykkur hin sem nennið að líta hingað inn..Þið eruð hipp!! -Og KÚL!
-- En hér kemur þetta svo--
Afi minn og amma mín út´á bakka búa þau eru bæði sæt og fín og þangað við ég fljúga

(SORRÝ, nennti ekki að semja sjálf)
- - - A Ð Í Ó - - -
R E G Í N A : )
Posted at 01:26 pm by reginadilja
Permalink
Wednesday, August 09, 2006
A lil´bit of this, al lil´bit of that..
Kominn tími á nokkur orð, ekki satt...
Ég er að fara að flytja eftir 3-4 vikur, tralla lalla laaaaaaaaa..Vá, ég get sko ekki beðið, við förum rosalega reglulega uppeftir, til að "tékka á gangi mála"..Við elskum það að standa þarna inni í ókláraðri íbúðinni, og spá og sekúlera..Íbúðin sú verður sko ólík þessari..Enda aaalveg eftir okkar höfði..Og prinsinn á heimilinu í sér herbergi L O K S I N S, þannig að það er ekki lengur "drasl" í stofunni hjá mér..Núna fer barnadótið bara inn í herbergi!! Við tlum samt ekki að flytja inn fyrren ALLT er reddý, þ.e.a.s að parketið er komið, allir listar, búið að mála og allt það..En við getum ábyggilega ekki smíðað pallinn strax því það þarf að vera í samráði við hina í húsinu..Oooooh..ég er svo óþolinmóð, ég vil pallinn minn N Ú N A !!! :o)
Svo eru ekki nema 11 dagar í það að ég sé akkúrat 23 ára gömul. Jú, þann 20 ágúst 1983 kl. 19:37 fæddist í heiminn "lítil" stúlka, einir 57 cm. og 3900 gr. Í tilefni af því verður LJÓTUFATAPARTÝ að öllum líkindum 2 sept, og þá eru sko VIRKILEGA ljót föt SKILYRÐI! Ég ætla að fara í Kolaportið og kaupa á Árna kristinn einhverja ógeðslega ljóta peysu og ljótar buxur. Bwahahaha.Get ekki beðið! :) Seinasta ljótufatapartý var líka S N I L L D, og spurning hvort að þetta nái að toppa það??
 En ég fæ eina ammælisgjöf í dag, ligga ligga lái, já enn eina myndavélina..Hún er frá Árna, og er að sjálfsögðu keypt á eBay..Árni benti mér pent á það að þetta er þá 5 myndavélin mín á réttu ári..Úps..en Hey! þetta er bara hobbý.."Já ógeðslega DÝRT hobbý" sagði minn þá, en splæsti samt á mig einni nýrri.. ;) Jeiiiiij..Hann er svo innilega bestur þessi elska. :o)
En seinustu vikuna hef ég fengið ca. 10 mini-taugaáföll hérna heima hjá mér. Afhverju, spyrji þið. -Jú útaf því að ég á lítinn strák, sem er á svona líka skemmtilegum grallara-aldri, og klifrar upp á ALLT!! Og ef hann nær ekki að klifra .angað upp, þá sækir hann eitthvað minna og klifrar upp á það, og prílar þaðan upp á stóra hlutinn. -Kann sko að redda sér. En ekki nóg með það að hann sé á þessu príleríi endalaust, heldur finnst honum EKKERT MÁL að stökkva niður af þessum hlutum!! Hann er búinn að detta fram úr hjónarúminu, kerrunni sinni, sófaborðinu, sófanum og bara name it!! Og trúið mér, það er ekki það að ég passa ekki upp á barnið mitt, hann er bara svo aaaasskoti snöggur, að það hálfa væri nóg!! Svo í gær var hann kominn upp á BORÐSTOFU borðið, og þá var mér allri lokið!! Hjartað mitt fór í milljón slög á mínútu, og ég hljóp í áttina að þessum sæta strák, sem var svo stoltur af eigin árangri, að hann sat bara sigri hrósandi ofan á miðju borðinu, brosandi út að eyrum svo það skein í spékoppana hans, og klappaði fyrir sjálfum sér. -Æææ.. What to do, what to do??

Svo er barasta komið haust..Þó svo að blessuð sólin skíni, þá er bara kalt. Og ég fíla það ekki. Þvílíkt rugl. -En ég fæ samt svona "haust-fiðring", þegar það er farið að dimma, og maður skríður upp í kalt rúm á kvöldin..Ég elska það sko..En ekki að vera alltaf kalt..Ooo ef maður bara fengi að ráða hitastiginu í kringum sig..Það væri fínt..
Annars var varsl.mannahelgin hjá okkur rosalega róleg, vorum á Flúðum í bústað með tengdó (Guð mér finnst ég svo mikil kelling þegar ég segi þetta orð..en hvað eru þau? jú, þau eru mín tengdó..)..Það var rosa notó, glæsilegur bústaður og bara allt yndislegt. Amma hans Árna átti nú nokkra gulmolana í þessari ferð, sem endranær. Þessi kona er ein sú fyndnasta í bransanum, maður getur sko helgið endalaust! Yndisleg! ;)


Svo er það bara back to school in 15 days! Hvað er það? En mikið verður gaman, Ruzan mín með mér, og mini-Ruz líka og svo auðvitað Erla Perla..Hlakka rosalega mikið til! :)
(Talandi um Ruzu, Guð hvað ég sakna þeirrar drottningar..En hún er væntanleg til landins 18 ágúst, er að spá í að vera bara í vellinum þegar hún lendir og bara heimta að keyra hana heim!! Sakna hennar ýkt!!!!!)
Svo byrjar SMÁBARNIÐ mitt hjá dagmömmu 21 ágúst..Ég hlakka til fyrir hans hönd, en alls ekki mína..Þetta á eftir að verða mér örlítið erfitt..En vonandi bara til að byrja með..Við erum nefnilega langbestu vinir í heiminum, ég hef aldrei átt jafn góðan og yndislegan vin..Og hvað þá svona skemmtilegan! Við erum saman allan daginn, alla daga..-Þannig að dagmamma verður mikið viðbrigði fyrir okkur öll..
Svo er Árni beibí að fara í fæðingarorlof 18 ágúst. Verður í mánuð, og tekur svo seinasta mánuðinn í des og fram í jan, þannig að við eigum öll jólin og áramótin saman. :) Það verður æði að hafa hann bara heima allan daginn, láta stjana örlítið við sig. ;)
En jæja, þetta er orðið ágætis öppdeit..Sosum ekkert krassandi, en svona þetta helsta hjá mér þessa dagana..Segi bara bless í bili, lovv lovv lovv
R E G Í N A
Posted at 01:24 am by reginadilja
Permalink
Thursday, July 27, 2006
Posted at 04:11 am by reginadilja
Permalink
Wednesday, July 26, 2006
Varmaland, Sól og Glanni..
Við fjölskyldan fórum í fyrstu útilegu "sumarsins" um seinustu helgi. Við héldum í Borgarfjörðinn, með Olla og Natöshu, og Magga Palla og Völu, og enduðum með því að tjalda í Varmalandi. Borgarfjörðurinn er náttúrulega bara æði, og Varmaland alveg rosalega fallegur staður.
 Við vorum þvílíkt heppin með veður, það var ótrúlega hlýtt, og við sátum úti til hálf 3 um nóttina, þvílíkt stuð. Ekkert fyllerí og læti, bara kósýheit og hláturskast. :) Manni var ekki einu sinni kalt!
 Daginn eftir vöknuðum við í glampandi sól, og borðuðum morgunmatinn úti að sjálfsögðu. Svo fór bara dagurinn í það að liggja úti í sólinni. Róbert Elí var þægasta barn í heimi, hann er náttúrulega bara bestur! Hann sat bara úti allan daginn að leika. Heyrðist ekki í honum! Hann er líka orðinn svona svakalega útitekinn drengurinn, enda glampandi sól, logn og 25 stiga hiti..ALLAVEGA! -Allir algerlega að steikjast!    Svo um 4 leytið á sunnudeginum var haldið af stað í bæinn, með stoppi á fossinum Glanna, en það er uppáhalds staðurinn minn á Íslandi. Bara endalaust fallegt, maður verður algerlega orðlaus þegar maður er þar! Hvet ALLA til að fara þangað í fallegu veðri, þið verðið sko ekki svikin!

Svo komum við í bæinn um kvöldmat, Róbert Elí fór heim að leika við afa, en við Árni fórum upp á Selfoss að skila jaldvagninum, og skelltum okkur út að borða í leiðinni. -Veðrið var yndislegt, og þetta var frábær endir á ÆÐISLEGRI helgi!! Ooooh það var svo gaman og krútlegt að ég get ekki líst því!! :)
En ég setti inn nyndir úr þessari snilldar ferð, og Natasha er líka búin að setja inn sínar myndir.
En allavega, ég er farin..ætlaði bara aðeins að segja frá bestu útilegu sem ég hef farið í! Takk fyrir helgina ÖLL, þetta var Y N D I!! :)
R E G Í N A :)

Posted at 03:56 am by reginadilja
Permalink
Wednesday, July 19, 2006
Sjitt búin að blogga milljón sinnum ógisslega og fáránlega væmna færslu um brúðkaupið hennar Guffu, en ég stroka það alltaf út af einhverri einskærri óheppni. Ég er því alveg orðin spinnigal í skapinu, og legg því ekki í þetta aftur!
En ég er búin að setja inn myndirnar frá bryllupinu, og líka júlí albúm. T-t-t-t-tjekk it!
En enn og aftur elsku Guðfinna mín, til hamingju með fallega daginn þinn, og með það að vera orðin FRÚ! Love jú, þú þarna gifta kona! :o)
En jæja, farin í ræktina og svo útaleika..
A Ð Í Ó
R E G Í N A
Posted at 02:05 am by reginadilja
Permalink
|
|